Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir ljóðabókina Deig. Dómnefndin segir:
„Deig er ljóðabók sem fjallar um hráefni lífsins, fegurðina í hinu hversdagslega og ferðalagið sem við göngumst undir frá vöggu til grafar. Rauði þráðurinn í gegnum verkið eru fjölskyldubönd og þá sérstaklega móðurhlutverkið sem deigið í titli bókarinnar verður að eins konar myndlíkingu fyrir. Í Deig er lesandanum ekki aðeins boðið upp í ljóðrænt ferðalag, heldur einnig skynrænt, þar sem blóðappelsínur, hvítlaukur og kóríander verða að hráefnum í margra rétta, bragðmikilli veislu lífsins.“






