HomeGreinarBLÓMIN HANS EGGERTS

BLÓMIN HANS EGGERTS

„Listin er krafturinn sem heldur öllu saman hvað sem á gengur. Kannski það nauðsynlegasta af öllu. Paradís er hér og nú og ekki ástæða til að sækjast eftir einu eða neinu. Listin er skugginn af lífinu og stendur áfram þegar tíminn líður og lífið er horfið.“

Eggert Pétursson

–

Listasafn Íslands opnar 6. nóvember sýningu á verkum Eggerts Péturssonar sem ber heitið
Þúsundblómabreiða. Opnunin fer fram föstudaginn 6. nóvember milli 17 og 19 í Listasafni
Íslands við Fríkirkjuveg 7.

Flóran á norðurslóðum myndar kjarnann í listsköpun Eggerts Péturssonar. Hann sækir í
djúpa þekkingu sína á íslenskum plöntum og byggir upp myndheim sem er í senn
grasafræðilega nákvæmur og ímyndaður, jarðbundinn og upphafinn.

Eggert Pétursson (f. 1956) er einn ástsælasti listamaður landsins. Hann fæddist í Reykjavík
og býr þar og starfar. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk
framhaldsnámi við Jan van Eyck Academie í Maastricht árið 1981. Þótt málverk hans séu
hlutbundin liggja rætur listsköpunar hans í Fluxus-hreyfingunni og hugmyndalist sjöunda og
áttunda áratugarins. Verk hans kallast jafnframt á við pósthúmanískar og vistfræðilegar
áherslur samtímans.

Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Listasafnsins í Turku í Finnlandi.

TENGDAR FRÉTTIR

EINKAVÆÐING INNVIÐA – ENGINN BÓNDI MYNDI SELJA MJÓLKURKÝRNAR OG LOFA UM LEIÐ AÐ HALDA ÁFRAM AÐ FÓÐRA ÞÆR Á EIGIN KOSTNAÐ

Ragnar Önundarson bankastjóri á eftirlaunum og samfélagsrýnir velti fyrir sér einkavæðingu innviða yfir hádegismatnum: "Einkavæðing innviða (þjónustu sem viðskiptavinir geta ekki verið án og verða...

STEFÁN JÓN ÞARF EKKI GERVIGREIND

Samfélagsmiðlar eru að fyllast af gervigreindarmyndum af nafntoguðu fólki sem lætur AI setja sig i myndræna tímavél sögunnar og notar svo sem prófílmynd. Ekki fjölmiðlamaðurinn...

Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST…

Skyndibitavígin falla eitt af öðru.

ÓVEÐUR Á TENE

Það viðraði ekki til myndatöku á Tenerife í morgun þegar stjörnuljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson fór í morgungöngu sína á ströndinni í Médano. Helga kona hans...

KÁLHAUS

Nú tíðkast að fólk merki höfuðföt sín með merkingum eða slagorðum til að einkenna sig frá öðrum. Nú hafa grænmetisætur fengið sína húfu sem...

FUNDU EKKI Á SÉR AF CAPTAIN MORGAN

Hjónin Elín Sigurðardóttir og Björn Sigmundsson dvelja á Spáni í góðu yfirlæti. Um daginn splæstu þau í flösku af Captain Morgan á mjög góðu...

TANNLÆKNAR PANTA FRÁ ÚTLÖNDUM – STYTTRA EN Í GARÐABÆ

Íslenskir tannlæknar eru í auknum mæli farnir að panta efni til tannviðgerða frá útlöndum. Til þessa hafa þeir pantað frá aðalbirgi sem staðsettur er...

EGILL (67)

Fjölmiðlastjarnan Egill Helgason fagnar merkum áfanga í dag, orðinn 67. Síungur og frískur þó eldri borgari sé orðinn og hefur ekki ástæðu til að...

TVEIR TURNAR

Hótelturninn á Skúlagötu "kallast á við" Hallgrímskrikju í upphafsstefni sjónvarpsfrétta ríkisins á hverju kvöldi. Það tók 41 ár að byggja Hallgrímskirkju en hótelturninn átti...

VIÐVERA OG VIÐHALD Í KEFLAVÍK

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Ísbjörg ritari segir í viðtali að hún sé mjög opin fyrir aukinni viðveru erlendra hermanna á Íslandi. En þeir þurfi líka að...

FYRSTI BÍTLABÍLLIN ´62

Bítlarnir Lennon, McCartney og George Harrison stilla sér hér upp við fyrsta bíl George sem var blár Ford Anglia með númeraplötunni 935 MPF. Myndin...

ALVÖRU GÖTUSTELPA OG ÓLAFUR RAGNAR Á HVERFISGÖTU

Fyrrum foreti Íslands hefur líkt núverandi utanríksráðherra við götustelpu í tali. Jóna Fanney Friðriksdóttir reis með réttu undir nafninu götustelpa á Hverfisgötu fyrir skemmstu: - Í...

Sagt er...

Ef Lori Huang, eiginkona "kvensama forstjórans" Jensen Huang, ákveður að skilja við hann gæti hún orðið ein ríkasta kona í heimi. Samkvæmt lögum í...

Lag dagsins

Fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson er sextugur í dag. Hann hefur markað dýpri spor en margur í íslenskan hversdagleika með sköpun sinni út og suður, upp...