„Veruleg áhætta fyrir almannahagsmuni fylgir því ef yfirráð yfir mikilvægustu fjarskiptainnviðum landsins færast alfarið í hendur einkaaðila. Hugsanleg sala Ljósleiðarans er því áhyggjuefni,“ segir doktor Herdís Kjerúlf Þorgeirsdóttir lögmaður á Facebook:
–
Í aðdraganda hrunsins seldi ríkið Landssíma Íslands ásamt grunnfjarskiptakerfinu til einkafjárfesta. Grunnnet Landssímans varð síðar hluti af Mílu, sem árið 2022 var seld franska fjárfestingarfélaginu Ardian. Meðal hluthafa Ardian er franski tískurisinn Hermès. Þannig teygja eignatengsl íslenskra fjarskiptainnviða sig inn í heim alþjóðlegra fjármála og lúxusvarnings, fjarri þeim almannahagsmunum sem innviðirnir eiga að þjóna. Til samanburðar má geta þess að stjórnvöld í Noregi og Svíþjóð tryggja verulegt opinbert eignarhald á fjarskiptainnviðum.
–
Svo mikilvæg þótti sala Mílu að þjóðaröryggisráð fjallaði ítrekað um hana. Stjórnvöld létu söluna engu að síður ganga eftir en gerðu sérstakan samning um öryggiskvaðir. Míla var með um 65% hlutdeild á heildstæðum markaði fyrir gagnaflutning samkvæmt mati Samkeppniseftirlitsins. Eftirlitið undirstrikaði jafnframt mikilvægi Ljósleiðarans, í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, sem sjálfstæðs keppinautar Mílu.
–
Samkeppniseftirlitið setti kaupum Ardian ströng skilyrði til að vernda samkeppnina. Míla braut þau skilyrði fljótlega með háttsemi sem var til þess fallin að hindra viðskipti Símans við keppinauta Mílu. Fyrir brotin hlaut fyrirtækið 200 milljóna króna stjórnvaldssekt.
–
Nú stendur jafnvel til að selja þennan mikilvæga keppinaut Mílu úr opinberri eigu. Þjóðaröryggi, fjarskiptaöryggi og aðgangur almennings að nauðsynlegri fjarskiptaþjónustu eru of mikilvægir hagsmunir til að stjórnvöld geti litið á sölu Ljósleiðarans sem skref í sparnaðaráformum.
–
Hvernig ætla stjórnvöld að tryggja grundvallarhagsmuni þjóðarinnar þegar yfirráð yfir mikilvægustu fjarskiptainnviðum landsins eru komin í hendur einkafjárfesta? Vart er hægt að búast við því að þeir fórni eigin arðsemiskröfum í þágu íslensks almennings.






