HomeSagt erHEITASTI SKYNDIBITINN Í KÖBEN

HEITASTI SKYNDIBITINN Í KÖBEN

Áreiðanlegasti fjölmiðill heims, New York Times, upplýsir að danska pylsan sé lent í öðru sæti sem vinsælasti skyndibitinn í Köben – og gott ef ekki víðar um Danmörku.
Á toppinn er komið rúnstykki með osti – bolle med ost. Eða BMO eins og svalir Danir orða það.
–
Dönsku bakaríin hafa ekki undan að smyrja rúnstykki með smjöri og osti – stundum bara osti. Rúnstykkin eru alls konar og sælkerar leggja mikið upp úr því að þau hafi harða skorpu, helst úr súrdeigsbrauði og ostsneiðin sé þykk og þétt.
Vinsælasti osturinn er Gammel Knas, sem er langþroskaður Havarti rjómaostur svipaður Óðals Tindi og Gull-Ísbúa.
–
Þó um rúnstykki sé að ræða, þá borða Danir það sjaldnast sem samloku á borð við hamborgar, heldur er toppurinn settur til hliðar. Á brauðinu er ekkert annað en smjör og ostur, ekkert aukalegt.
–
Í Bakarameistarnum fæst rúnstykki með osti á 640 krónur, ódýrara en pylsa með öllu á Bæjarins bestu.
TENGDAR FRÉTTIR

RÍKASTA KONA Í HEIMI?

SPURNING DAGSINS

SKOPMYND Í JÓLAPAKKANN.

EINKAVÆÐING INNVIÐA – ENGINN BÓNDI MYNDI SELJA MJÓLKURKÝRNAR OG LOFA UM LEIÐ AÐ HALDA ÁFRAM AÐ FÓÐRA ÞÆR Á EIGIN KOSTNAÐ

Ragnar Önundarson bankastjóri á eftirlaunum og samfélagsrýnir velti fyrir sér einkavæðingu innviða yfir hádegismatnum: "Einkavæðing innviða (þjónustu sem viðskiptavinir geta ekki verið án og verða...

STEFÁN JÓN ÞARF EKKI GERVIGREIND

Samfélagsmiðlar eru að fyllast af gervigreindarmyndum af nafntoguðu fólki sem lætur AI setja sig i myndræna tímavél sögunnar og notar svo sem prófílmynd. Ekki fjölmiðlamaðurinn...

Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST…

Skyndibitavígin falla eitt af öðru.

ÓVEÐUR Á TENE

Það viðraði ekki til myndatöku á Tenerife í morgun þegar stjörnuljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson fór í morgungöngu sína á ströndinni í Médano. Helga kona hans...

KÁLHAUS

Nú tíðkast að fólk merki höfuðföt sín með merkingum eða slagorðum til að einkenna sig frá öðrum. Nú hafa grænmetisætur fengið sína húfu sem...

FUNDU EKKI Á SÉR AF CAPTAIN MORGAN

Hjónin Elín Sigurðardóttir og Björn Sigmundsson dvelja á Spáni í góðu yfirlæti. Um daginn splæstu þau í flösku af Captain Morgan á mjög góðu...

TANNLÆKNAR PANTA FRÁ ÚTLÖNDUM – STYTTRA EN Í GARÐABÆ

Íslenskir tannlæknar eru í auknum mæli farnir að panta efni til tannviðgerða frá útlöndum. Til þessa hafa þeir pantað frá aðalbirgi sem staðsettur er...

EGILL (67)

Fjölmiðlastjarnan Egill Helgason fagnar merkum áfanga í dag, orðinn 67. Síungur og frískur þó eldri borgari sé orðinn og hefur ekki ástæðu til að...

TVEIR TURNAR

Hótelturninn á Skúlagötu "kallast á við" Hallgrímskrikju í upphafsstefni sjónvarpsfrétta ríkisins á hverju kvöldi. Það tók 41 ár að byggja Hallgrímskirkju en hótelturninn átti...

VIÐVERA OG VIÐHALD Í KEFLAVÍK

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Ísbjörg ritari segir í viðtali að hún sé mjög opin fyrir aukinni viðveru erlendra hermanna á Íslandi. En þeir þurfi líka að...

FYRSTI BÍTLABÍLLIN ´62

Bítlarnir Lennon, McCartney og George Harrison stilla sér hér upp við fyrsta bíl George sem var blár Ford Anglia með númeraplötunni 935 MPF. Myndin...

ALVÖRU GÖTUSTELPA OG ÓLAFUR RAGNAR Á HVERFISGÖTU

Fyrrum foreti Íslands hefur líkt núverandi utanríksráðherra við götustelpu í tali. Jóna Fanney Friðriksdóttir reis með réttu undir nafninu götustelpa á Hverfisgötu fyrir skemmstu: - Í...

Sagt er...

Ef Lori Huang, eiginkona "kvensama forstjórans" Jensen Huang, ákveður að skilja við hann gæti hún orðið ein ríkasta kona í heimi. Samkvæmt lögum í...

Lag dagsins

Fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson er sextugur í dag. Hann hefur markað dýpri spor en margur í íslenskan hversdagleika með sköpun sinni út og suður, upp...