Sjáöldur katta eru sögð stækka mikið þegar þeir þefa af rótinni, þar af leiðandi var hún talin góð við augnsjúkdómum og kölluð augnrót. Garðabrúðan hefur líka verið nefnd kattarjurt þar sem lyktin af henni ku virka kynörvandi á ketti, þess vegna var því líka trúað að jurtin örvaði einnig ástir manna. Garðabrúða er ræktuð víða í Evrópu og úr henni unnið róandi lyf. Þetta er þekkt lækningajurt en ef rótin er notuð á réttan hátt hefur hún róandi áhrif (Ágúst H. Bjarnason 1994).
GARÐABRÚÐAN LIFÐI AF FROSTNÓTT Á FYRSTA VETRARDEGI
Þjóðólfur Hélan sendir myndskeyti:
–
Þetta fallega blóm stóð keikt í Víðdalnum í Reykjavík á fyrsta Vetrardegi, þrátt fyrir frostnótt og hélaða jörð í vetrarsól. Ágiskun: Garðabrúða, nema einhver viti betur…
–
Garðabrúða vex villt syðst á landinu en kemur fyrir sem slæðingur annars staðar.






