Gunnar Salvarsson fjölmiðlamaður og tónistargagnrýnandi um árabil fór á tónleika Eivarar færeysku í Hörpu í gær og minntu tónleikarnir hann helst á náttúruundur sem látið hefur drekkja sér í orkuverum.
–
„Tónlist hennar og dásamleg rödd njóta sín ekki í þessum sálarlausa hljóðvegg rafmagnaðs hávaða. Sjónrænt voru tónleikarnir áhrifamiklir og það verður ekki frá Eivöru tekið að hún er lífleg og tilkomumikil á sviði í litadýrð ljósa. Hún gerði margt fallegt og lauk lögunum oft með glæsibrag. Þá tók við það besta: örfá andartök í þögn áður en talið var í næsta skarkala. Öll sterku þjóðlegu og oft fornu sérkenni tónlistar Eivarar eru þarna einhversstaðar falin djúpt undir groddaralegum raftöktum hljóðgervla, bassa og bumbusláttar. Það er mikil synd og söknuður eftir náttúrulegri einlægri Eivöru sem dáleiddi hlustendur og áhorfendur með skærri rödd og tónlist sem kallaðist á við söng aldanna. Nú er hún gengin í sömu björg og margir aðrir. Sérkennin horfin. Úti á túni og ratar ekki heim.“






