Fjörutíu ára gamall draumur snýr aftur sem draugur, efnahagshrunið er rifjað upp frá sjónarhóli tólf ára barns, halastjarna ferðast um sólkerfið á meðan sýningunni stendur og á opnuninni hljótum við minjagrip um atburð sem er varla hafinn. Í Viðverunni koma fram fjórir listamenn sem vinna með gjörninginn á ólíkan hátt. Verkin teygja sig milli fortíðar, nútíðar og framtíðar, upp í himinhvolf og inn í undirmeðvitundina þar sem liðnir atburðir eru kallaðir fram á ný og verða að ófyrirséðum augnablikum í samspili listamanna og áhorfenda.
Þetta er viðfangsefni sýningarinnar Viðvera sem opnar í Nýlistasafninu á Granda 29. október. Þar sýna listamennirnir Halldór Ásgeirsson, Margrét Dúadóttir, Ráðhildur Ingadóttir, og Skúli Thayer






