Guðrún Ása Björnsdóttir læknir er forsprakki Litla spítalans sem verið er að innrétta við Háaleitisbraut í gamla húsi Landsvirkjunar.
–
Sér til fulltingis hefur Guðrún Ása eiginmann sinn Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóra fasteignafélagsins Heima, sem stendur að uppsetningu aðstöðu læknaþjónustunnar. Eigandi hússins er Samherjakóngurinn Kristján Vilhelmsson en hann keypti það ásamt Leó Árnasyni viðskiptafélaga sínum á 1,2 milljarða króna í fyrra.
–
Landsvirkjun yfirgaf húsið vegna myglu og hafa framkvæmdir staðið yfir síðan á vegum Heima, sem mun annast útleigu eignarinnar.






