„En gaman að Sentimental Value hafi fengið verðlaun! Ég horfði nefnilega á þessa mynd á Filmin veitunni og fannst hún alveg ömurlega leiðinleg,“ segir listamaðurinn Þórarinn Leifsson um norsku kvikmyndina sem fékk verðlaun Norðurlandaráðs og reyndar sópuðu Norðmenn að sér verðlaunum í öllum flokkum sem í boði voru hjá Norðurlandaráði að þessu sinni. Þórarinn heldur áfram:
„Aðalleikkonan – dæmigerð taugaveikluð skandínavísk mús – að fá endalaus hlutverk núna og Stellan Skarsgård hlær á leiðinni í bankann. Það er svo gaman að upplifa hvað við erum öll með ólíkan smekk í listum almennt. Verði ykkur að góðu.“




