Margt bendir til þess að úrsögn Jóns Gnarrs úr þingflokki Viðreisnar marki fyrirætlun um að ganga til liðs við Samfylkinguna. Hann og Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingar voru nánir samstarfsmenn þegar Jón gegndi stöðu borgarstjóra frá 2010 til 2014.
Hugsanlega lítur Jón svo á að dagar Viðreisnar séu taldir þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu rann út í sandinn. Þá hefur hann ekki fengið sérstakan framgang innan flokksins og virðist reiður forystunni.
Með sama hætti virðist Dagur B. Eggertsson ekki í náðinni hjá núverandi forystu og fékk ekki ráðherrastól við myndun síðustu ríkisstjórnar en formaður flokksins kallaði hann á þeim tíma ,,aukaleikara“.
Væntanlega gera þessir kumpánar sem báðir eru sjóaðir í pólítík sér vonir um stærri hlutverk í framtíðinni og snúa bökum saman í þeirri viðleitni.






