Gilbert úrsmiður & Co á Laugavegi fór um helgina til Stokkhólms á ráðstefnuna Stockholm Time og til að vera við afhendingu verðlauna á Nordic Watch Awards 2026.
Á verðlaunahátíðinni lentu Gilbert, félagar og synir í þriggja liða úrslitum með nýjustu afurð sína, Sólmyrkvi Total Solar Eclipse 2026.
„Fyrir úrsmiði á litlu úrsmíðaverkstæði í Reykjavík er frábært að hitta starfsfélaga sína í stærra samhengi ytra, hitta fólk sem deilir ástríðu með okkur á úrum og úrsmiðum,“ sögðu Gilbert & Co við heimkomuna í gær.






