„Góða helgi,“ sagði Ólafur Ævarsson geðlæknir á föstudaginn og lét nokkur ráð falla um áfengi í tilefni dagsins:
–
Ekki fara í Ríkið í hverri viku.
–
Aðeins einn drykk í móttökunni.
–
Eitt glas með matnum ekki tvö.
–
Aðeins um helgar.
–
Sleppa matarboðum hjá virka alkóhólistanum.
–
Þú þarft ekki að bjóða áfengi í veislum.
–
Áfengi er óviðeigandi á íþróttaviðburðum og óþarfi í leikhúsinu eða á tónleikunum enda eru þá gleðigjafarnir aðrir en áfengi.
–
Flestum finnst kynlíf betra án áfengis.
–
Finndu þínar eigin reglur sem ættu þá að beinast að því að draga úr heildarmagni og hættu á ölvun.
–
Ef þú villt fullkomið öryggi frá áfengisheilsubresti, taktu þá aldrei fyrsta sopann.






