„Böddi er kominn í land og þar með lýkur 45 ára ferli hans sem togarasjómanns. Nú hefst nýr kafli í lífinu, framtíðin sem við höfum talað svo mikið um er komin. Nú er bara að njóta,“ segir Elín Sigurðardóttir unnusta hans og ánægð með.
„Hvað gerir vélstjóri á frystitogara?“, spurði ég í sakleysi mínu þegar ég kynntist honum.
„Ég geng um vélarúmið með stóran skiptilykil“, var svarið.







