Óttar Guðmundsson geðlæknir skrifar í sýningaskrá eiginkonu sinnar, Jóhönnu V. Þórhallsdóttur, en hún opnar sýningu í Gallerí Fold á laugardaginn sem hún kallar „Kraftbirtig hvunndagsins“. Óttar segir:
–
Útvarp allra landsmanna hefst venjulega á stunu eða óánægjuandvarpi á mánudagsmorgni. Þáttastjórnendur sakna helgarinnar og kvíða komandi viku. Hvunndagurinn blasir við í allri sinni grámyglu. Framundan eru fimm langir dagar fullir af hversdagsleika. Glöggur hlustandi vorkennir öllum þeim sem vakna inn í enn eina tilbreytingarlausa vikuna.–Jóhanna V. Þórhallsdóttir kallar þessa sýningu sína „Kraftbirtingu hvunndagsins“. Hún leitar að krafti og dulúð í rútínunni. Söngur og gleði hefur alltaf verið drifkraftur í list hennar. Lífið er dásamlegt bæði á rauðum dögum og bláum. Sterkir litir og ákveðin form lífga uppá hversdagsleikann.–Hugurinn hverfur til umkomulítilla skálda fyrri alda sem lágu undir súðinni og tilbreytingarlausir dagar runnu saman í eina heild. Þau leituðu að þeim kraftbirtingarhljómi sem gæfi tilverunni ljós og lit.–Hvunndagurinn er spennandi viðfangsefni vegna þess að töfrar hans felast í hinu óvænta. Jóhanna lætur lífið koma sér á óvart. Hún sér töfra í grámyglunni, liti í litleysu, gleði í drunga, fjör í einhæfninni. Hún gerir alla daga að hvunndegi og hvunndaginn að eldrauðum almanaksdegi. Það er máttur listarinnar breyta veruleikanum í takt við langanir og ímyndunarafl hvers og eins.–Jóhanna stundaði myndlistarnám í Þýskalandi, Austurríki og Reykjavík. Hún hefur haldið margar sýningar og fengið viðurkenningar fyrir list sína. Ræturnar liggja í tónlist en Jóhanna var söngkona og kórstjóri um árabil.






