Ljósið og listakonan Hlín Reykdal hafa tekið höndum saman og hannað sérstakt „Ljósa-charm“ ásamt armböndum og hálsmenum.

Þegar Ljósð leitaði upphaflega til Hlínar með þessa hugmynd bar það einmitt upp á afmælisdegi pabba hennar en hún missti pabba sinn, Jón Reykdal listmálara, úr krabbameini. Henni fannst því skrifað í skýin að vinna með Ljósinu og er að gefa alla sína vinnu. Allur ágóði af sölu skartsins rennur því til Ljóssins – sjá hér.
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.





