
Ólafur Hauksson, almennatengill og fyrrum ritstjóri, veltir fyrir sér hvernig þessi fallegi diskur hafi komist i hans eigu:
„Í umræðunni um 40 ára afmæli leiðtogafundarins 1986 rifjaðist upp fyrir eiginkonunni að ég hafði komið heim með þennan veglega matardisk með innbrenndu lógói fundarins. Inni í skáp hefur hann setið síðan. Ég var að vinna í PR málum á leiðtogafundinum en man ekki hvernig diskurinn komst í mínar hendur eða af hvaða tilefni hann var framleiddur. Mér dettur því í hug að athuga hér hvort einhverjir þarna úti viti eitthvað um tilurð þessa forláta postulíns.“






