Kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn, föstudaginn 9. október klukkan 20.00. Frítt er í Viðeyjarferjuna Í boði Yoko Ono en skráning nauðsynleg hjá Eldingu. Fríar strætóferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur.
Yoko Ono skapaði Friðarsúluna til að halda á lofti þeim friðarboðskap sem hún og eiginmaður hennar John Lennon töluðu fyrir og tileinkaði honum verkið sem logar frá fæðingardegi hans 9. október til dánardægurs þann 8. desember.





