Slow Food á Íslandi býður ykkur í BragðaGarð, skemmtilega og fræðandi Slow Food hátíð sem haldin verður í Grasagarði Reykjavíkur föstudaginn 9. október kl. 11:00–15:00.
Hátíðin er sérstaklega ætluð nemendum í framhaldsskólum landsins og elstu bekkjum grunnskóla og býður upp á fjölbreytta upplifun þar sem matur, menning, sjálfbærni og skynjun mætast á lifandi og skemmtilegan hátt, þar sem nemendur í Matvælaskólanum í MK leiða jafningjafræðslu.
Hvað verður í boði?
Nemendur Hótel- og Matvælaskólans leiða fræðslu og verkefni um:
Nemendur Hótel- og Matvælaskólans leiða fræðslu og verkefni um:
Mat og matarhefðir
Sjálfbærni í matvælaframleiðslu
Þjálfun bragðlauka og þefskyns
Leiki og skemmtileg verkefni tengd mat og umhverfi
Jurtakokteilabar
Sýnikennsla á einföldum réttum fyrir ungmenni úr íslensku hráefni
Kynningu á kjötverkun og vinnslu matvæla