HomeGreinarBERGÞÓRA GLÍMIR VIÐ SEÐLA-GEIRA

BERGÞÓRA GLÍMIR VIÐ SEÐLA-GEIRA

Hagbarður í Hokri sendir póst:
–
Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur Íslandsbanka er ekki við sama heygarðshornið og stórbóndinn Seðla-Geiri í Svörtuloftum (sjá hér.) Bergþóra er samt greinilega komin lengra en í hagfræði 101. Hún skrifar m.a. á vef Íslandsbanka:
–
Húsnæði er stærsti einstaki þjónustuliðurinn í verðbólgunni og skýrir um 1,7% af 5,6% verðbólgu. Framlag húsnæðisliðarins hefur verið á svipuðum slóðum undanfarna mánuði og skýrir rúmlega 30% af heildarvrðbólgunni. Þegar mest lét skýrði húsnæðið hins vegar um helmingi verðbólgunnar. Þótt húsnæði sé enn stærsti einstaki verðbólguliðurinn er vægi þess í verðbólgunni mun minna en þegar verðbólgan var í hámarki.

Áhrif húsnæðis á vísitölu neysluverðs eru mikil enda vegur húsnæðisliðurinn þyngst allra liða í vísitölunni. Stærsti undirliður hans er reiknuð húsaleiga, sem vegur nú tæplega 21% í vísitölunni. Það endurspeglar hversu stór hluti húsnæðiskostnaður er af útgjöldum heimilanna.

Til þess að verðbólga nái aftur markmiði Seðlabankans skiptir miklu máli að hægi á hækkunum reiknaðrar húsaleigu. Þar eru vissulega jákvæð teikn á lofti, enda hefur fasteignamarkaðurinn kólnað verulega undanfarin misseri og raunverð íbúðarhúsnæðis tekið að lækka. Reiknuð húsaleiga hefur þó reynst ansi seig og hækkun hennar þrálát.

Ein skýring þess gæti verið að Hagstofan breytti aðferðafræði sinni árið 2024 og byggir nú mælinguna á þróun leiguverðs fremur en íbúðaverðs. Frá því breytingin tók gildi hefur leiguverð gefið hægar eftir en íbúðaverð og reiknuð húsaleiga enn hægar. Því hefur gengið hægar að draga úr áhrifum húsnæðis á verðbólguna en ella.

Hátt hlutfall verðtryggðra leigusamninga gæti skýrt þessa þróun að einhverju leyti. Slíkir samningar taka sjálfkrafa mið af breytingum á vísitölu neysluverðs og geta þannig skapað víxlverkun milli verðbólgu og leiguverðs. Það kann að hafa stuðlað að því að reiknuð húsaleiga hefur reynst þrálátari en ætla mætti út frá þróun leiguverðs.

TENGDAR FRÉTTIR

EINKAVÆÐING INNVIÐA – ENGINN BÓNDI MYNDI SELJA MJÓLKURKÝRNAR OG LOFA UM LEIÐ AÐ HALDA ÁFRAM AÐ FÓÐRA ÞÆR Á EIGIN KOSTNAÐ

Ragnar Önundarson bankastjóri á eftirlaunum og samfélagsrýnir velti fyrir sér einkavæðingu innviða yfir hádegismatnum: "Einkavæðing innviða (þjónustu sem viðskiptavinir geta ekki verið án og verða...

STEFÁN JÓN ÞARF EKKI GERVIGREIND

Samfélagsmiðlar eru að fyllast af gervigreindarmyndum af nafntoguðu fólki sem lætur AI setja sig i myndræna tímavél sögunnar og notar svo sem prófílmynd. Ekki fjölmiðlamaðurinn...

Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST…

Skyndibitavígin falla eitt af öðru.

ÓVEÐUR Á TENE

Það viðraði ekki til myndatöku á Tenerife í morgun þegar stjörnuljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson fór í morgungöngu sína á ströndinni í Médano. Helga kona hans...

KÁLHAUS

Nú tíðkast að fólk merki höfuðföt sín með merkingum eða slagorðum til að einkenna sig frá öðrum. Nú hafa grænmetisætur fengið sína húfu sem...

FUNDU EKKI Á SÉR AF CAPTAIN MORGAN

Hjónin Elín Sigurðardóttir og Björn Sigmundsson dvelja á Spáni í góðu yfirlæti. Um daginn splæstu þau í flösku af Captain Morgan á mjög góðu...

TANNLÆKNAR PANTA FRÁ ÚTLÖNDUM – STYTTRA EN Í GARÐABÆ

Íslenskir tannlæknar eru í auknum mæli farnir að panta efni til tannviðgerða frá útlöndum. Til þessa hafa þeir pantað frá aðalbirgi sem staðsettur er...

EGILL (67)

Fjölmiðlastjarnan Egill Helgason fagnar merkum áfanga í dag, orðinn 67. Síungur og frískur þó eldri borgari sé orðinn og hefur ekki ástæðu til að...

TVEIR TURNAR

Hótelturninn á Skúlagötu "kallast á við" Hallgrímskrikju í upphafsstefni sjónvarpsfrétta ríkisins á hverju kvöldi. Það tók 41 ár að byggja Hallgrímskirkju en hótelturninn átti...

VIÐVERA OG VIÐHALD Í KEFLAVÍK

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Ísbjörg ritari segir í viðtali að hún sé mjög opin fyrir aukinni viðveru erlendra hermanna á Íslandi. En þeir þurfi líka að...

FYRSTI BÍTLABÍLLIN ´62

Bítlarnir Lennon, McCartney og George Harrison stilla sér hér upp við fyrsta bíl George sem var blár Ford Anglia með númeraplötunni 935 MPF. Myndin...

ALVÖRU GÖTUSTELPA OG ÓLAFUR RAGNAR Á HVERFISGÖTU

Fyrrum foreti Íslands hefur líkt núverandi utanríksráðherra við götustelpu í tali. Jóna Fanney Friðriksdóttir reis með réttu undir nafninu götustelpa á Hverfisgötu fyrir skemmstu: - Í...

Sagt er...

Ef Lori Huang, eiginkona "kvensama forstjórans" Jensen Huang, ákveður að skilja við hann gæti hún orðið ein ríkasta kona í heimi. Samkvæmt lögum í...

Lag dagsins

Fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson er sextugur í dag. Hann hefur markað dýpri spor en margur í íslenskan hversdagleika með sköpun sinni út og suður, upp...