Listasafn Íslands opnar 17. október sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í
aldanna rás, þar sem sýndar verða 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns Úkraínu í
Kænugarði. Verkin eru frá 12. öld fram á öndverða 19. öld og hafa mikið listsögulegt og
trúarlegt gildi.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins og er sýningin afrakstur náins samstarfs Listasafns Úkraínu, Listasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands.
Sýningin stendur í eitt ár. Að henni lokinni verða helgimyndirnar áfram í varðveislu hér á
landi, þar sem öryggi þeirra verður tryggt á meðan stríðið í Úkraínu stendur yfir.






