Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús – þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort stórt og þau hjónin deili því litla.
–
Tobba Marinósdóttir starfsmaður ráðherrans bendir Loga á að skera eplin með ostaskera og borða hægt til að fá sem mest út úr þessu en sjálf ræktar hún gúrkur og það tekur á:
–
„Þetta garðlíf er hark. Þessar fjórar gúrkur sem ég hef ræktað í sumar hefa kostað meiri umönnun en bæði börnin mín.“






