Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar nám. Óvíst er hver situr í aftursætinu. Þá spurðu andstæðingar þeirra: „Á bílakostur Vöku að ráða úrslitum?“

Kjartan er 75 ára í dag. Hann er þekktastur fyrir að hafa verið framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í 26 ár en því starfi gegndi hann frá því um haustið 1980 fram í október 2006. Hann var kosinn í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins eftir landsfund hans 1977 og starfar þar enn. Hann hefur líka verið bankaráðsmaður í Landsbankanum og stjórnarformaður VÍS. Össur Skarphéðinsson kallaði Kjartan fixer þegar Kjartan sagði starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.





