„Hvað ef stjörnukortið þitt sýnir ekki aðeins hver þú ert, heldur líka hvert þú ert að fara? spyr Gunnlaugur Guðmundsson, landsþekktur stjörnuspekingur sem heldur námskeið í Garðabæ með Heru Gísladóttur undir yfirskrftinni „Leiðarljós, athafnir sem leiða til gæfu og velfarnaðar.“
Á námskeiðinu verður kafað ofan í Norður- og Suðurnóðu tunglsins og kennt að lesa vegferð sálarinnar í gegnum stjörnukortið. Farið verður yfir nóðurnar í öllum stjörnumerkjunum og húsum og hvað þær segja okkur um það sem við komum með inn í lífið og þá átt sem við erum kölluð til að þróast í.
Örfá sæti laus 1. október kl. 17-21. Verð: 25.000 krónur.




