Það er ýmislegt að sjá í umferðinni í Reykjavík ef ökumenn líta til himins á rauðu ljósi – rosabaugur!
ROSABAUGUR
Rosabaugur myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu (oftast bliku) sem er hátt á himni. Hún inniheldur ekki vatnsdropa, heldur ískristalla, því það er yfirleitt frost svona hátt uppi. Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina. Ískristallarnir eru sexstrendingar og þegar ljósið fer í gegnum þá breytir það um stefnu, en misjafnlega mikið eftir því hvernig það fellur á strendinginn. Algengasta stefnubreytingin er 22 gráður, og þess vegna myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himninum. Þetta gerist þótt ískristallarnir snúi á alla mögulega vegu í skýjunum; við sjáum samsafn ljóss sem fer gegnum þá kristalla sem hafa mátulega stefnu.





