Á föstudagskvöldið var fyrsta portrettið af Friðriki tíunda Danakonungi afhjúpað í Fredriks Slot í Hilleröd 38 kílómetra norðvestur af Kaupmannahöfn. Verkið er unnið af Cathrine
Raben Davidsen sem er velþekkt í dönsku myndlistarsenunni og fór hún í margar skógargöngur með konungnum áður en hún lét til skarar skríða og málaði.
Konungsmyndin sýnir Friðrik tíunda í einkennisbúningi danska sjóhersins hlaðinn heiðursorðum, með hvíta hanska og græn laufblöð og prestafífla í bakgrunni.
„Verkið á eftir að hanga þarna á vegg í mörg hundruð ár og lifa bæði mig og kónginn,“ segir listakonan en myndin er ekki að allra skapi í Danmöru.





