„Hvað varð um fallegu ljósin á Njálsgötunni?,“ spyr Sigrún Brynjarsdóttir sem þar býr og vaknaði upp við vondan draum:
„Í vikunni var ljósastaurunum í gamla stílnum skipt út fyrir það sem mér finnst helst líta út eins og forljótir litlir sveppir. Maður vaknar bara einn daginn og búið er að breyta ásýnd götunnar.
–
Gömlu ljósin pössuðu svo vel við húsin og voru hluti af sjarma götunnar. Mér finnst virkilega sorglegt að sjá þau hverfa og svona ópersónuleg ljós koma í staðinn. Þetta eru einmitt smáatriðin sem gera miðbæinn fallegan og sérstakan og það munar um þau þegar þau hverfa.“





