„Það eru umræður um skilning og misskilning á hvernig atvinnutekjur ellilífeyrisþega eiga að reiknast. Þessi mál munu vera mun skýrari hjá öryrkjum. Það dregst hver unnin króna öryrkjans frá greiðslu örorkubótanna,“ segir Bjarni Þorsteinsson ritstjóri og eldri borgari og heldur áfram:
–
„Það sem er öllu undarlegra er að fjármagnstekjur maka öryrkja, t.d. vextir af innistæðu í banka, dragast af örorkubótunum öryrkjans, 50%. Og fólkið þarf ekki að vera gift, nóg að þau búi saman.
Tekjur maka örykja dragast sem sagt frá örorkugreiðslum til hans. Hélt að slíkt hafi verið afnumið fytir allnokkrum árum.“





