Þetta er falleg mynd af Reykjavíkurtjörn og lítur út fyrir að vera gerð af gervigeind en svo er ekki. Þetta er kynningarmynd fyrir Blágrænt málþing Reykjavíkurborgar á morgun.
Þar verður rætt um framgang LIFE Icewater verkefnisins í Reykjavík um bætt vatnsgæði og vistkerfi í Tjörninni og Vatnsmýrinni, flóðavörnum í Kvosinni og innleiðingu blágrænna lausna.
Dagskrá:
- Ávarp og opnun málþings – Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagssviðs.
- LIFE Icewater verkefnið í Reykjavík – Anna Rósa Böðvarsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg.
- Hólmagerð í Tjörninni – Þórhildur Þórhallsdóttir, landslagsarkitekt hjá Landmótun.
- Vatnsmýrin – Staða og næstu skref – Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri vatnsmiðla hjá Veitum.
- Mæling forgangsefna í Tjörninni – Svava Svanborg Steinarsdóttir, verkefnastjóri vöktunar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
- Myndband: Trekanten vatn í Stokkhólmi – svipaðar áskoranir og í Tjörninni í Reykjavík.
- Hvers vegna blágrænar ofanvatnslausnir? – Halldóra Hreggviðsdóttir, skipulagsráðgjafi og framkvæmdastjóri ALTA.
- Myndband – Blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði
- Flóðamat í Kvosinni: Niðurstöður – Sigurður Grétar Sigmarsson, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís.
- Endurhönnun fráveitu í Þingholtum – Jón Pétur Wilke Gunnarsson, verkefnastjóri vatnsmiðla hjá Veitum
- LIFE Icewater verkefnið á Íslandi – Sæmundur Sveinsson, verkefnastjóri LIFE Icewater, Umhverfis- og orkustofnun
- Samantekt og lokaorð – Freyr Eyjólfsson, fundarstjóri verkefnastjóri hjá Sorpu,
Málþingi er í Tjarnarsal Ráðhússins miðvikudaginn 23. september milli kl. 13 og 15.




