Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður Miðflokksins, er á hækjum eftir hnéaðgerð í Orkuhúsinu og stefnir að því að fara í golf:
„Eftir að hafa haltrað undanfarin misseri með tættan liðþófa, sprungið bakers cyst með reglulegum sterasprautum og að tappa af hnénu fer landið nú loks vonandi að rísa og stefnan er tekin á golf á nýju ári,“ segir hann og vonast til að verða sem nýr.




