„Ég fékk SMS um að ég skuldaði 3.450 krónur í bifreiðagjöld, sem mér væri ráðlegt að borga sem fyrst,“ segir rithöfundurinn og matargúrúinn Nanna Rögnvaldsdóttir og þótti skrýtið því hún hefur aldrei átt bíl né keyrt bíl:
„Svo sá ég að þessi rukkun var send úr argentínsku farsímanúmeri. Mátti reyna.“





