Kaupmannsbúðin er ekki í Kaupmannahöfn. Kaupmannsbúðin er á Flateyri og Halla Signý Kristjánsdóttir ánægð með:

„Þetta er sjálfsafgreiðslu verslun sem býður upp á ágætis úrval af matvöru og fleiru nauðsynlegu. Bæði verð og úrval kom mér á óvart. Auk þess sem búðin er einstaklega snyrtileg. Gott framtak sem mætti koma fyrir á fleiri stöðum. Vöruverð stenst fyllilega samkeppni við stærri samstæður sem ekki geta opnað kjörbúðir á litlum stöðum nema vera með vöruverð upp í rjáfur.“
Opið allan sólarhringinn





