Mannlíf birtir fyrirsögn dagsins í slúðurmola – Snorri selur. Þar segir meðal annars:
„Varaformaður Miðflokksins, Snorri Másson, hefur slegið í gegn meðal Miðflokksmanna og eru vinsældir hans nú taldar ógna sjálfum Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.“
Fyrirsögnin kallast greinilega á við vinæla barnabók sem flestir þekkja – Selurinn Snorri. Í bókarkynningu segir um þessa barnabók:
„Selurinn Snorri á heima langt norður í Íshafi.
Mamma hans og Skeggi frændi hafa varað hann við
ýmsum hættum.“





