Þriðjungur bíleigenda er til í að skilja bílinn eftir heima, hætta að aka til og frá vinnu og fara með strætó eða öðru móti. Þetta er meðal þess sem kom fram í niðurstöðum rannsóknarverkefnisins Tilraunaborgir (Pilot Cities Project) sem kynntar hafa verið í borgarstjórn.
Alls búa 98% svarenda nógu nálægt vinnustað sínum til að geta nýtt virka ferðamáta, en helstu hindranir eru kostnaður, áreiðanleiki og skortur á samkeppnishæfum valkostum við einkabílinn.





