Jólastjörnum á eftir að rigna yfir Eldborgarsal Hörpu á tvennum tónleikum 5. desember – „Komdu um jólin“ heitir viðburðurinn miðasala fer að hefjast
Komdu um jólin er hugsað sem jóla- og áramótapartý í einni bombu þar sem hátíðleg jólastemning mætir gleðinni sem fylgir jólum og áramótunum. Á efnisskránni verða jólalög sem flestir þekkja og elska, bæði íslensk og erlend,
Söngvararnir í sýningunni í ár eru Birgitta Haukdal, Stefán Hilmarsson, Ragga Gísla, Klara Elías, Klara Einars, Magni, Gunni Óla og Vignir Snær sem jafnframt er hljómsveitarstjóri. Með þeim verður einvala lið tónlistarfólks og öllu verður tjaldað til í Eldborg í hljóði, ljósum og umgjörð.
„Við Birgitta höfum unnið þessa hugmynd saman. Við vildum ná að skapa stemmningu sem er ekki bara tengd jólum heldur bara almenn jóla- og áramótastemmning,“ segir Einar Bárðarson tónleikahaldari.
„Okkur fannst kominn tími á ákveðna endurnýjun á lagavali og við hjólum lóðbeint í erlend 80’s jólalög eins og Last Christmas og Do they know its Christmast í bland við jólalög aldamótaartistanna sem ekki hafa verið áberandi á sambærilegum tónleikum síðustu 20 árin eða svo.Við erum með geggjaðan mannskap með okkur í þessu, það var hrikalega gaman í fyrra en þetta verður sko alvöru jólakúla!“
Miðasala á Komdu um jólin hefst fimmtudaginn 17. september kl. 10:00, en tónleikarnir fara fram í Eldborg í Hörpu laugardaginn 5. desember. Boðið verður upp á tvær sýningar, kl. 17:00 og 21:00.




