Þórarinn Leifsson leiðsögumaður, rithöfundur og myndlistarmaður hefur birt brot út væntanlegri bók sinni, „Leiðsögn til heljar“ sem er sjálfstætt framhald af „Út að drepa túrista“.
–
Síðasti spölurinn að Dettifossi var jafn niðurdrepandi og vanalega. Við ókum í gegnum eyðimörk þar sem ekkert var að sjá nema urð og grjót, áður en við komum að mjög löngu, malbikuðu bílastæði með heljarinnar salernisbyggingu fyrir miðju. Kamarhúsið var sannkallað verkfræðiafrek. Það samanstóð af fjórtán sérhönnuðum jarðgerðarklósettum sem þurftu ekkert rennandi vatn og reiddu sig alfarið á loftháða rotnun. Hrár mannaskítur var brotin niður í stöðuga, þurra moltu á staðnum.
–
Þetta undur í verkun skíts var algjörlega utan kerfis, án tengingar við rafmagn, vatnslagnir eða fráveitu. Það var hannað til að taka á móti saur frá þúsundum rassgata á hverjum einasta degi. Og þess vegna tók á móti okkur yfirþyrmandi sæt angan af þurrkuðum mannaskít um leið og við stigum út úr jeppanum. Fnykurinn var auðvitað svona magnaður einmitt vegna þess að hér var ekkert rennandi vatn – jafnvel þótt byggingin stæði býsna nálægt einu kröftugasta fljóti veraldar.
–
Skítakamarinn var einnar hæðar há bygging með göngupöllum og handriðum allan hringinn. Fjórtán kamrar og fjórtán grænar hurðir voru rammaðar inn af sinnepsgulum veggjum. Allt þetta gaf húsinu ógnvekjandi blæ; nákvæm fagurfræði fangabúða réði ríkjum.„Dettifoss,“ muldraði ég við sjálfan mig. „Guð minn góður, hvað ég hata þennan stað.“





