Dægurstjarnan Hebbi hefur alltaf verið ljóshærður en nú hefur hann bætt um betur og er orðinn alveg blond með tvisti af lyftingu og permanenti. Enda stendur mikið til. Hann hitar upp fyrir hina heimsfrægu Boney M á jólatónleikum í Hörpu í desember.
– Er þetta alvöru Boney M eða eitthvert cover band?
„Þetta er alvöru Boney M, Liz Mitchell, orginal söngkona þeirra með unga undirleikara með sér og öllu gömlu góðu lögin tekin og við hitum upp,“ segir Hebbi sem er yngri en Liza í Boney M, 73 ára en Liza ári eldri – og hér tekur hún jólalag:





