Í dag, 3. september 2026, tekur ný vaxtatafla gildi í Íslandsbanka og í kjölfarið munu vextir hækka. Breytingarnar taka mið af ákvörðun Seðlabanka Íslands um hækkun stýrivaxta 19. ágúst 2026.
HÚSNÆÐISLÁN
- Vextir á verðtryggðum húsnæðislánum eru óbreyttir.
- Vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum með föstum vöxtum eru óbreyttir.
- Óverðtryggð húsnæðislán með breytilegum vöxtum hækka um 0,25 prósentustig.
ÚTLÁN
- Verðtryggðir kjörvextir eru óbreyttir.
- Óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig.
- Óverðtryggðir kjörvextir Ergo, vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,25 prósentustig.
- Vextir á yfirdráttarlánum hækka um 0,25 prósentustig.
- Vextir á greiðslukortum hækka um 0,25 prósentustig.
INNLÁN
- Vextir á Vildarsparnaði hækka um 0,15-0,27 prósentustig, fer eftir stöðu í Vildarþjónustu.
- Vextir á Ávöxtun hækka um 0,20 prósentustig.
- Vextir á fastvaxtareikningum hækka um 0,11-0,35 prósentustig.
- Vextir á verðtryggðum innlánsreikningum eru óbreyttir.
- Vextir á óverðtryggðum veltureikningum eru óbreyttir.
- Vextir á öðrum óverðtryggðum sparnaðarreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig.





