„Allt tekur þetta enda,“ segir Guðni Pálsson arkitekt sem hefur ákveðið að selja friðlýst verðlaunahús á Álftanesi sem hann teiknaði sjálfur fyrir sig og Gurrý eiginkonu sína sem lést fyrir tæpum þremur árum. Sjálfur verður Guðni áttræður í desember:
–
„Húsið okkar var teiknað fyrir okkur Gurrý. Við flutum í það um jólin 1986. Ég er því búin að vera hér í tæp 40 ár og nú þegar Gurrý er farin finnst mér ég ekkert hafa hér að gera lengur, passa bara ekki inn lengur. Get ekki hugsað mér að vera einn í húsinu og finnst að einhverjir aðrir eigi að fái að njóta hússins og staðsetningu þess. Húsið er einstakt, það vita allir vinir okkar og þeir sem hafa hingað komði og það er ekki að ástæðulausu að það var friðlýst.
–
Ég ítreka líka þann lúxus að eiga friðlýst hús, sem felur í sér að eigandi greiðir í kringum 25-30% af öllum viðhaldskostnaði á móti Minjastofnun af friðlýsta hluta hússins, sem í okkar tilfelli er allt húsið að utan og allt húsið að undanskyldu hjónaherbergi, baði og vinnuherbergi. Hægrt er að sækja um styrk til Minjastofnunar á hverju ári.“





