„Þrátt fyrir andúð nágranna minna á því atferli mínu að henda brauði fram af svölunum hefur mér aldrei komið til hugar að hætta því,“ segir hafnfirski rithöfundurinn Svanur Már Snorrason og hér er skýringin:
–
„Að horfa á fuglana í garðinum af efstu hæð í fjölbýlishúsi er góð afþreying og fær mann til að hugsa.
–
Að horfa á fuglana slást um eina brauðsneið en líta framhjá þeim þremur brauðsneiðum sem eru rétt hjá þeirri sem slegist er um hefur lengi valdið mér heilabrotum.
–
Kannski eru fuglar og menn ekki eins ólíkir og maður skyldi ætla? Erum við mennirnir ekki alltaf að berjast innbyrðis um eitthvað sem nóg er af?
–
Og alltaf látum við sigurvegarann eiga megnið af brauðinu, en hlaupum með smá mola eða mylsnu í felur, hræddir eins og litlir fuglar.“



