Vatnsflóð á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis, 1951. Í frétt Morgunblaðsins 12. júní með þesssari mynd Ólafs K. Magnússonr, sagði:
„Vatnselgurinn var svo mikill á ýmsum götum, að vatnið gusaðist inn á vélar bílanna og stöðvuðust margir. Meira að segja í miðju Austurstræti. Þeir sem ekki höfðu tíma til að bíða þess að rigningunni slotaði, fetuðu sig fram með hliðum húsanna, en fengu gusur samt yfir sig, því rennur húsanna yfirfylltust eins og göturæsin.“
Sýningin „Á vettvangi” með myndum Ólafs K. Magnússonar blaðaljósmyndara opnar á Ljósmyndasafni Reykjavíkur þann 12. september n.k. og stendur yfir til 6. desember.


