„Ég veit að það eru ekki allir sammála mér en ég vil hafa RUV hér, líkt og BBC í Bretlandi og ríkisfjölmiðla á Norðurlöndum. Spurningin snýst ekki um tilverurétt RUV heldur sanngirni og samkeppnisstöðu. Eitthvað sem Alþingismenn hingað til hafa ekki haft hugrekki til að taka á,“ segir Heimir Karls í morgunútvarpi Bylgjunnar um áratugaskeið í tilefni dagsins:
–
„RÚV býr við þá sérstöðu að stærsti hluti tekna þess kemur frá útvarpsgjaldi sem almenningur og fyrirtæki þurfa að greiða, hvort sem þau nota þjónustu RÚV eða ekki. RÚV getur því treyst á þessa fjármögnun ár eftir ár og þarf ekki að afla hennar á markaði eins og einkareknir fjölmiðlar.
RÚV – hvað erum við að tala um?
–
Árið 2024:
• 6,1 milljarður kr. frá skattgreiðendum
• 2,55 milljarðar kr. í auglýsingar og kostun
• Um 18% af auglýsingatekjum innlendra fjölmiðla
• Samtals um 8,7 milljarðar kr. úr þessum tveimur tekjustofnum
Fyrir þetta rekur RÚV m.a.:
• 2 (tæplega)sjónvarpsrásir – RÚV og RÚV 2
• 2 útvarpsrásir – Rás 1 og Rás 2
• RÚV.is – stóran frétta- og vefmiðil
• Fréttastofu fyrir sjónvarp, útvarp og vef
… og Hlaðvarp.
–
Spurningin er einföld: Er sanngjarnt að ríkisfjölmiðill sem fær rúma 6 milljarða króna frá skattgreiðendum á ári sæki jafnframt 2,55 milljarða á auglýsingamarkað og keppi þar við einkarekna fjölmiðla?
Og þarf umfang ríkisfjölmiðilsins að vera svona mikið?
Er ekki kominn tími til að taka á þessu óréttlæti?“



