„Nú fær þjóðin valdið. Íslendingar flykkjast á kjörstað,“ sagði Kristrún Frostadóttir á leið á kjörstað ásamt eigimanni sínum:
„Ég kaus með gleði í hjarta. Stolt af því að efna loksins loforð sem þjóðinni var gefið.
Við eigum Ísland saman. Og saman mótum við framtíð Íslands.
Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er einstakt tækifæri – í stóru hagsmunamáli fyrir þjóðina.
Sækjum góðan samning fyrir Ísland, skoðum tækifærin og tökum endanlega ákvörðun síðar. Eða leggjum umræðu um aðild að ESB til hliðar ef það verður niðurstaðan í dag.
Mikilvægast af öllu er að við mætum sem flest og kjósum. Látum ekki aðra ákveða þetta fyrir okkur.
Og höldum svo áfram að byggja Ísland sem ein þjóð í einu landi.
Takk og til hamingju með daginn! Lifi Ísland og lifi lýðræðið.“




