HomeGreinarSTERKASTA TRÉÐ VEX EKKI ÞAR SEM ER LOGN

STERKASTA TRÉÐ VEX EKKI ÞAR SEM ER LOGN

„Sterkasta tréð vex ekki þar sem er logn,“ segir Þorgerður Katrín utanríkisráðherra sem staðið hefur í ströngu og stendur nú frammi fyrir tvísýnum úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslu sem verið hefur hennar hjartans mál:
„Þessi platti hefur lengi hangið í eldhúsinu mínu og verið mér góð og mikilvæg áminning. Bæði persónulega og í stjórnmálum. Því stórar ákvarðanir eru sjaldnast teknar í logni. Mikilvægustu skrefin í sögu Íslands hafa sjaldnast verið átakalaus. Þau hafa oft kallað fram harðar deilur og sterkar skoðanir. Það eitt hefur aldrei verið ástæða til að sitja hjá.
Ég hef þá bjargföstu trú að taka frekar slaginn fyrir það sem ég trúi á en sitja hjá. Jafnvel þó ljóst sé fyrirfram að mótvindurinn verði töluverður. En hann minnir líka á hvers vegna maður fór af stað. Þessa dagana finn ég það sterkt. Og er óendanlega þakklát fyrir stuðninginn.
Umræðan síðustu vikur hefur verið hörð á köflum. Það er skiljanlegt þegar mikið er undir. En þetta mál er stærra en hvert og eitt okkar. Það snýst um framtíð Íslands og þá valkosti sem þjóðin vill eiga. Þess vegna skiptir máli að umræðan snúist um efnið sjálft, ekki persónur og leikendur. Ísland hefur alltaf orðið sterkara með því að mæta stormum af kjarki og sjálfstrausti.
Við þurfum ekki að vera sammála. En við eigum að þora að leita svara og fá upplýsingar áður en við lokum dyrum. Það tel ég bæði skynsamlegt og rétt fyrir Ísland.“
Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

GUÐNI SELUR FRIÐLÝST VERÐLAUNAHÚS Á ÁLFTANESI

"Allt tekur þetta enda," segir Guðni Pálsson arkitekt sem hefur ákveðið að selja friðlýst verðlaunahús á Álftanesi sem hann teiknaði sjálfur fyrir sig og...

ÍSLANDSBANKI HÆKKAR VEXTI

Í dag, 3. september 2026, tekur ný vaxtatafla gildi í Íslandsbanka og í kjölfarið munu vextir hækka. Breytingarnar taka mið af ákvörðun Seðlabanka Íslands...

VAXTARÆKT Í SVÖRTULOFTUM

Þjóðólfur í H-Okri sendir póst: - Það þarf koma í veg fyrir frekari vaxta-rækt í Svörtuloftum! Eru vaxtaákvarðanir ekki nú þegar komnar úr böndunum? Sjá nánar.

MANNLÍF Í SKJÓLI VARNARLIÐSINS

Ásmundur Friðriksson fyrrum alþingismaður situr ekki auðum höndum þó þingsetu sé lokið. Hann sendir frá sér bókina Sögur af Vellinum - mannlíf í skjóli...

HEIMIR KARLS TEKUR RÚV Í NEFIÐ

"Ég veit að það eru ekki allir sammála mér en ég vil hafa RUV hér, líkt og BBC í Bretlandi og ríkisfjölmiðla á Norðurlöndum....

VATNSFLÓÐ Í MIÐBÆNUM 1951

Vatnsflóð á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis, 1951. Í frétt Morgunblaðsins 12. júní með þesssari mynd Ólafs K. Magnússonr, sagði:„Vatnselgurinn var svo mikill á ýmsum...

KRISTRÚN KAUS MEÐ GLEÐI Í HJARTA

"Nú fær þjóðin valdið. Íslendingar flykkjast á kjörstað," sagði Kristrún Frostadóttir á leið á kjörstað ásamt eigimanni sínum:"Ég kaus með gleði í hjarta. Stolt...

GÚSTI RÓT LÁTINN

Gústi Rót, goðsögn meðal tónlistarmanna um áratugaskeið, lést föstudaginn 21. ágúst. Gústi Rót var gælunafn Ágústs Ágústssonar sem starfaði með mörgum hljómsveitum á blómatíma dægurtónlistar...

TIL BRUSSEL FYRIR 20 ÞÚSUND – BÁÐAR LEIÐIR

Hollenska flugfélagið Transavia byrjar að fljúga milli Íslands og Brussel í nóvember, þrisvar í viku. Transavia er lágfargjaldaarmur KLM og svo sannarlega stendur félagið...

KAUPFÉLAGSSTJÓRI Í BÓNUS

Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, einn mesti fjáraflamaður í sögu kaupfélaganna, var á Egilsstöðum síðdegis í dag "að sækja bæði sykur og brauð, sitt...

SÖNG FYRIR NICOLE KIDMAN Í VATNSHELLINUM Á SNÆFELLSNESI

Sópransöngkonan Alexandra Chernyshova frá Úkraínu, sem fékk menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2020, var fengin til að syngja fyrir fólk af skemmtiferðaskipi í Vatnshellinum á Snæfellsnesi í...

SPRELLIKARL Í AMERÍSKA SENDIRÁÐINU

Billy Long, hinn nýi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, er langt því frá að vera hinn hefðbundni diplómati. Hann er sagður léttur í lund og...

Sagt er...

"Pólitískar ástarsorgir" heitir þessi mynd Axels Péturs Axelssonar - sjá hér.

Lag dagsins

Gummi Ben, sá eini sanni, maðurinn með röddina fyrir boltann, er afmælisbarn dagsins (52). Hann fær óskalag við hæfi: https://www.youtube.com/watch?v=KXw8CRapg7k