Hinn eini sanni Bond, Sean Connery (1930-2020), fæddist á þesum degi og hefði orðið 96 ára í dag. Hann lést fyrir sex árum – níræður. Hann reis úr ösku fátæktar til auðlegðar og heimsfrægðar og þótt arftakar hans í hlutverki James Bond hefðu verið margir, skákaði honum enginn – aldrei.




