Í dag opnaði Haukur Dór málverkasýningu á 86 ára afmælisdegi sínum á Mokka.
Haukur Dór sýnir að þessu sinni 13 málverk sem öll voru máluð á þessu ári. Verkin eru öll akrýlverk á striga.

Haukur Dór er fæddur í Reykjavík 24. ágúst 1940 og nam við Edinburgh College of Art og Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Síðar stundaði hann nám við Visual Art Center í Maryland í Bandaríkjunum.
Hann hélt fyrstu einkasýningu sína á myndlist 1963 á Mokka og hefur síðan á rúmum 60 ára ferli haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum myndlistarmanna og leirlistamanna víða um lönd.
Haukur Dór hefur unnið að leirlist og myndlist á Íslandi, í Danmörku, Spáni og Bandaríkjunum. Í dag helgar hann sig málaralistinni alfarið.
Verk Hauks Dórs er að finna í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og Hönnunarsafni Íslands og að auki nokkrum öðrum listastofnunum og einkasöfnum.




