Gústi Rót, goðsögn meðal tónlistarmanna um áratugaskeið, lést föstudaginn 21. ágúst.
Gústi Rót var gælunafn Ágústs Ágústssonar sem starfaði með mörgum hljómsveitum á blómatíma dægurtónlistar hér á landi, þar á meðal Trúbrot, Flowers og Brimkló. Hann var þekktur fyrir dugnað sinn og tækniþekkingu á sviði hljóðkerfa og upptökutækni.
Gústi Rót varð rúmlega áttræður, fæddur 1945.



