Hollenska flugfélagið Transavia byrjar að fljúga milli Íslands og Brussel í nóvember, þrisvar í viku. Transavia er lágfargjaldaarmur KLM og svo sannarlega stendur félagið undir því að bjóða lág fargjöld.
–
Bæði í nóvember og desember er hægt að fljúga fram og til baka fyrir 20 þúsund krónur með Transavia, en ef taska er tekin með kostar það 28 þúsund krónur. Dýrasta fargjaldið er 47 þúsund krónur og þá má breyta dagsetningum, taka með níðþunga tösku og velja sæti hvar sem er í vélinni.
–
Icelandair flýgur líka til Brussel og hefur gert um hríð. Með þjóðarflugfélaginu eru flestöll lægstu fargjöldin uppseld, en með tösku er hægt að komast fram og til baka fyrir 65 þúsund krónur – og flogið er alla daga vikunnar.
–
Með öðrum orðum, tveir komast til Brussel með Transavia á sama verði og einn með Icelandair.
–
Ef landsmenn velja að halda áfram aðildarviðræðum við ESB þann 29. ágúst, þá verða væntanlega margir sem vilja skjótast til Brussel til að berja höfuðstöðvarnar augum. Eða bara fá sér belgíska vöfflu í upprunalandinu.



