Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, einn mesti fjáraflamaður í sögu kaupfélaganna, var á Egilsstöðum síðdegis í dag „að sækja bæði sykur og brauð, sitt af hvoru tagi“ eins og segir í vísunni. Athygli vakti að hann fór í Bónus til að versla en ekki gamla Kaupfélag Héraðsbúa sem stóð í miðju bæjarins næstum alla síðustu öld en er nú horfið og heitir Nettó. Húsið er þó það sama.
Kaupfélag Héraðsbúa, sem réð yfir allri verslun á Austurlandi á síðustu öld var, flutt yfir á Reyðarfjörð snemma á síðustu öld en rekstri haldið á fram á Egilsstöðum eins og í útibúi. En það var einmitt á Reyðarfirði sem Þórólfur kaupfélagsstjóri í Skagafirði fæddist 1952 og ólst upp undir verndarvæng kaupfélagsins eins og aðrir íbúar sem undu vel við sitt.
Snemma hneigðist Þórólfur til viðskipta, eins og margir frændur hans, og eftir stúdentspróf í Samvinnuskólanum renndi hann hýru auga til kaupfélagsstjórastöðunnar á Reyðarfirði, þar sem útibúið á Egilsstöðum fylgdi með, þegar gamli kaupfélagsstjórinn lét af störfum eftir að hafa stýrt stórveldinu í hálfa öld en faðir hans hafði stofnað kaupfélagið upphaflega. Ekki rættust kaupfélagsdraumar Þórólfs þar og fékk hann í staðinn Kaupfélag Langnesinga á Þórshöfn sem var veigaminna og var þar frá 1976-1988.
Þá urðu vandræði með kaupfélagið á Sauðárkróki og Þórólfur sóttur alla leið út á Langanes til að bjarga því sem bjargað varð. Og hann kom, sá og sigraði og breytti Kaupfélagi Skagfirðinga í eitt mesta viðskiptaveldi Íslandssögunnar. Svo mjög efldist það undir stjórn Þórólfs að engar hræringar verða í íslensku fjármálakerfi nema hringt sé í Þórólf fyrst.
Svo var hann á Egilsstöðum í gær og fór í Bónus!



