HomeGreinarSPRELLIKARL Í AMERÍSKA SENDIRÁÐINU

SPRELLIKARL Í AMERÍSKA SENDIRÁÐINU

Billy Long, hinn nýi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, er langt því frá að vera hinn hefðbundni diplómati. Hann er sagður léttur í lund og ófeiminn við að segja það sem hann er að hugsa, sem getur stundum verið óheppilegt. Eitt sinn sagðist hann telja umburðarlyndi fyrir fóstureyðingum vera ástæðu fyrir tíðum skotárásum í Bandaríkjunum. Hann var afar gagnrýninn á bandarísk skattyfirvöld en tók glaður við embætti skattstjóra úr hendi Trump forseta. Hélt djobbinu að vísu bara í tvo mánuði, en þá gerðir Trump hann að sendiherra hér á landi.
Billy starfaði lengst af sem sölumaður, uppboðshaldari og útvarpsmaður. Í því starfi tala menn oft mjög hratt og hefur Billy notfært sér uppboðstaktana til að skemmta fólki í pólitískum umræðum. Hann var þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í 12 ár. Hann var einn af þeim fyrstu til að lýsa yfir stuðningi við framboð Trump í forsetaembætti og segist vera einn af allra fyrstu og dyggustu stuðningsmönnum forsetans.
Eftir að hann hætti þingmennsku fór Billy að veita vafasama skattaráðgjöf. Meðal annars reyndi hann að selja skattainneignir sem voru ekki til. Hann þáði 8 milljónir króna í þóknun fyrir þessa svikasölu þar til hann var stoppaður. Það virkaði því ekkert sérlega sannfærandi þegar Trump útnefndi hann skattstjóra. Líklega áttuðu ráðgjafar Trumps sig á því að þetta hefðu verið mikil mistök, enda var Billy settur af tveimur mánuðum síðar og gerður að sendiherra á Íslandi í staðinn.
Billy tekur afdráttarlaust undir fullyrðingar Trump um að úrslitin í forsetakosningunum árið 2020 hafi verið fölsuð (stolen) og Trump í raun unnið. Útnefningu Billy í sendiherrastarfið var ekkert sérstaklega fagnað hér á landi þegar fréttist að hann hefði sagt að Ísland gæti orðið 52. ríki Bandaríkjanna, á eftir Grænlandi. Hann baðst síðar afsökunar og sagði að þetta hefði verið tómt grín.
Bandarískir sendiherrar hafa oft verið áberandi í þjóðlífinu og margir muna eftir Marshall Brement sem sinnti menningarlífinu hér á landi ásamt eiginkonu sinni. Húðlæknirinn og sendiherrann Jeffrey Ross Gunter vakti nokkra athygli á sínum tíma, aðallega fyrir að óska eftir að bera skammbyssu þar sem hann óttaðist mjög um líf sitt hér á landi.
Án vafa mun Billy Long láta til sín taka og reyna að vingast við Íslendinga með sínum létta og sérkennilega persónuleika.
TENGDAR FRÉTTIR

GUÐNI SELUR FRIÐLÝST VERÐLAUNAHÚS Á ÁLFTANESI

"Allt tekur þetta enda," segir Guðni Pálsson arkitekt sem hefur ákveðið að selja friðlýst verðlaunahús á Álftanesi sem hann teiknaði sjálfur fyrir sig og...

ÍSLANDSBANKI HÆKKAR VEXTI

Í dag, 3. september 2026, tekur ný vaxtatafla gildi í Íslandsbanka og í kjölfarið munu vextir hækka. Breytingarnar taka mið af ákvörðun Seðlabanka Íslands...

VAXTARÆKT Í SVÖRTULOFTUM

Þjóðólfur í H-Okri sendir póst: - Það þarf koma í veg fyrir frekari vaxta-rækt í Svörtuloftum! Eru vaxtaákvarðanir ekki nú þegar komnar úr böndunum? Sjá nánar.

MANNLÍF Í SKJÓLI VARNARLIÐSINS

Ásmundur Friðriksson fyrrum alþingismaður situr ekki auðum höndum þó þingsetu sé lokið. Hann sendir frá sér bókina Sögur af Vellinum - mannlíf í skjóli...

HEIMIR KARLS TEKUR RÚV Í NEFIÐ

"Ég veit að það eru ekki allir sammála mér en ég vil hafa RUV hér, líkt og BBC í Bretlandi og ríkisfjölmiðla á Norðurlöndum....

VATNSFLÓÐ Í MIÐBÆNUM 1951

Vatnsflóð á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis, 1951. Í frétt Morgunblaðsins 12. júní með þesssari mynd Ólafs K. Magnússonr, sagði:„Vatnselgurinn var svo mikill á ýmsum...

KRISTRÚN KAUS MEÐ GLEÐI Í HJARTA

"Nú fær þjóðin valdið. Íslendingar flykkjast á kjörstað," sagði Kristrún Frostadóttir á leið á kjörstað ásamt eigimanni sínum:"Ég kaus með gleði í hjarta. Stolt...

STERKASTA TRÉÐ VEX EKKI ÞAR SEM ER LOGN

"Sterkasta tréð vex ekki þar sem er logn," segir Þorgerður Katrín utanríkisráðherra sem staðið hefur í ströngu og stendur nú frammi fyrir tvísýnum úrslitum...

GÚSTI RÓT LÁTINN

Gústi Rót, goðsögn meðal tónlistarmanna um áratugaskeið, lést föstudaginn 21. ágúst. Gústi Rót var gælunafn Ágústs Ágústssonar sem starfaði með mörgum hljómsveitum á blómatíma dægurtónlistar...

TIL BRUSSEL FYRIR 20 ÞÚSUND – BÁÐAR LEIÐIR

Hollenska flugfélagið Transavia byrjar að fljúga milli Íslands og Brussel í nóvember, þrisvar í viku. Transavia er lágfargjaldaarmur KLM og svo sannarlega stendur félagið...

KAUPFÉLAGSSTJÓRI Í BÓNUS

Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, einn mesti fjáraflamaður í sögu kaupfélaganna, var á Egilsstöðum síðdegis í dag "að sækja bæði sykur og brauð, sitt...

SÖNG FYRIR NICOLE KIDMAN Í VATNSHELLINUM Á SNÆFELLSNESI

Sópransöngkonan Alexandra Chernyshova frá Úkraínu, sem fékk menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2020, var fengin til að syngja fyrir fólk af skemmtiferðaskipi í Vatnshellinum á Snæfellsnesi í...

Sagt er...

"Pólitískar ástarsorgir" heitir þessi mynd Axels Péturs Axelssonar - sjá hér.

Lag dagsins

Gummi Ben, sá eini sanni, maðurinn með röddina fyrir boltann, er afmælisbarn dagsins (52). Hann fær óskalag við hæfi: https://www.youtube.com/watch?v=KXw8CRapg7k