Smáríkið við Fiskislóð á Granda afgreiðir nú áfengi beint í bílinn, út um lúgu sem eitt sinn var gjaldkeralúga hjá Íslandsbanka þegar hann hafði þar aðsetur.
–
Til að fá áfengið í gegnum bílalúguna þarf kaupandinn að vera búinn að panta það á netinu hjá Smáríkinu. Þetta virkar í raun og svipað og hjá KFC, pöntun gerð og borguð í símanum og tveimur mínútum síðar er búið að taka pöntunina til og afhenda í lúgunni.
–
Smáríkið er erlend netverslun sem selur áfengi af lager á evrópska efnahagssvæðinu (EES), enda hefur Vínbúðin einkaleyfi á smásölu áfengis á Íslandi. Að það taki aðeins tvær mínútur að koma áfenginu þannig til landsins telja margir vera einstakt kraftaverk.



